Ég stal þessu frá henni Öldu Borgars
Þegar piparúðinn notast
> lítill löggumaður tekur:
> Fyrst af öllu piparúðann
> og hann ýtir fast á staut.
> Þá má heyra ýmsa æpa,
> aðrir hvítna eins og næpa.
> Sumir nudda æstir augun,
> æða grátandi á braut.
>
> Þegar öllu þessu er lokið
> lítill löggumaður segir:
> Þetta er ansi góður úði,
> allt er hyskið farið brott.
> Inni í klefa á ég bjána,
> einn með gulan bónusfána
> Og með svona piparúða
> gengur police-vinnan flott.